Miðgarður

Hrepptu svo ætíð eilíft hel

Miðgarður header image 2

Zatôichi eftir Takeshi Kitano

Sunnudagur 29. ágúst 2004 · 2 ummæli · kvikmyndir

Zatoichi Ég keypti tvær japanskar myndir í 2001 hjá Sigga (Hverfisgötu) í síðustu viku, annars vegar Zatôichi og hinsvegar Samurai Fiction. Ég gaf mér loxins tíma til þess að horfa á aðra þeirra í gær, þ.e. Zatôichi.

Flest allt sem Takeshi Kitano snertir verður að gulli, þær myndir sem hann leikstýrir og hefur yfirumsjón með eru í algerum sérflokki. Það eru sjálfsagt fáir Íslendingar sem vita hver maðurinn er, það er aðallega smár hópur Íslendinga sem hafa áhuga á Japan sem vita hver hann er og þekkja eitthvað til japanskrar kvikmyndagerðar. Ég geri ráð fyrir að stærstur hluti þessa hóps séu Nexus nördar. En hvað um það, áfram með Kitano.

Hann er með það furðulega alþjóðlega nafn Beat Takeshi en ég held samt sem áður að flestir þekki hann undir raunverulegu nafni. Áður hef ég séð Sonatine eftir, hann, Kikujiro, Hanabi, Brother og Battle Royale sem hann leikur í. Og nú síðustu nótt Zatôichi. Ég held varla vatni yfir henni, hún er stórkostleg. Ég ætla ekki að fara sérstaklega í söguþráðinn, þú getur bara klikkað á nafnið þarna efst sem skýtur þér á Internet Movie Database.

Myndin, eins og flest allar myndirnar hans, er tragísk, hæfilega ofbeldisfull en með yndislegum húmor inni á milli – stundum súrrealískum. Skemmtilegt er að sjá raunverulegri sverðbardaga sem með hjálp tölvutækninnar ýtir undir það; blóðið gusast út um allt, sverð fara í gegnum búka og þar fram eftir götunum – huggulegheit. Tónlistin er hreint afbragð, nútímalegri heldur en það sem hann hefur notað hingað til sem oftar en ekki hefur verið eftir Joe Hisaishi. Það er eiginlega skilda að horfa á hana í 5.1 hljóðkerfi bæði hvað varðar tónlistina og hljóðblöndun. Það gerir hana allaveganna mikið skemmtilegri. Kvikmyndatakan er frábær, oft með snöggum þöglum klippingum sem einkenna myndir Takeshi. Einskonar augnabliks innlit sem áhorfandinn þarf að lesa úr ef hann áttar sig ekki á því á stundinni.

Ég get ekki mælt nógu mikið með þessari mynd en það er örugglega ekki hægt að leigja hana á videoleigum, efast meira að segja um Aðalvideoleiguna. Þá áttu bara að rjúka niðureftir til Sigga í 2001 og kaupa hana!

Hérna eru nokkrar háupplausna myndir úr henni.

Svo horfi ég vonandi á Samurai Fiction í kvöld.

Efnisorð: ····

2 ummæli hingað til↓

  • Aðalvideoleigan

    Jú jú Takeshi Kitano hefur heiðrað hillur Aðalvideoleigunar nú um árabil…Vel hefur verið hlúð að Japöskum myndum hjá okkur og nokkuð gott safn til af þeim…Þá er öðrum afkimum jarðkringlunar okkar einnig gert hátt undir höfði…Vertu velkomin…AVT2

  • Siggi

    Frábært :-) Allir að skella sér á Aðalvideoleiguna fyrir japanskar kvikmyndafýsnir sínar!

Skildu eftir ummæli.