Mér tókst það, fyrir þrítugt, að flytja að heiman.
Ég fékk einstaklingsíbúð niðri í Skuggahverfi á þriðju hæð og get flutt inn 1. apríl. Ég býst þó ekki við að flytja mikið að dóti inn fyrr en helgina eftir það, en það er víst af nógu að taka. Svo þarf líklega að kaupa nýjar hillur fyrir bækurnar (sjá sjálfsögðu í IKEA) og sitthvað fleira. Ég hef ekki séð teikningu af íbúðinni og veit því ekkert hvernig hún lítur út og get ekki baun giskað hvar hlutir eins og rúm, sjónvarp og stóll/sófi gætu verið
þú verður hér eftir kallaður Siggi Skuggi…
Eða Skugga-Siggi.