Ég er bæði búinn að vera latur að blogga undanfarið og haft lítinn tíma til þess. Ég var farinn að hlakka til að flytja yfir helgina þegar ég áttaði mig á því að það væri heimapróf í Menningarheimum akkúrat þessa helgi (og mér tókst bara að svara tveimur spurningum af fjórum (og eina heimaprófið af þremur sem ég skila)) og þar að auki er ég með fyrirlestur um Juliu Roberts við þriðja mann á þriðjudaginn. Juliu Roberts, af öllum. Þannig þarf ég, þurfti, ég að klára þetta áður en ég get flutt. Á meðan stendur íbúðin svo gott sem tóm í viku. Ömurlegt að huxa til þess að vera fastur hérna á meðan maður hefur eigin íbúð í hundraðogeinum tilbúna til þess að flytja inn í. Í ofanálagi hef ég fengið vott af pest yfir helgina og er aumur og sár í hálsinum (þess vegna gat ég ekki einbeitt mér betur að heimaprófinu) og er ekki enn byrjaður á mínum hluta fyrirlestrarins.
Það er ekki laust við að ég sé stressaður yfir komandi mánuði (þrjár ritgerðir) og prófinu í Menningarheimum (ég vil ná þessu, en eftir að hafa bara skilað hálfu prófi af þremur heilum hljóta möguleikarnir mínir að rýrna). Djöfulsins slufsi get ég alltaf hreint verið.
Ókei, á næstu önn tek ég þetta, og byrja á að sækja námstækninámskeið.
latur að blogga…. iss þú hefur bara ekkert merkilegt segja…
Gummi (sem gafst upp að blogga fyrir LÖNGU síðan því ekkert merkilegt eða frásagnarvert var að gerast í hans lífi, hefur ekki breyst síðan)