Miðgarður

Listamaðurinn lengi þar við undi

Miðgarður header image 2

Kominn í Skuggagarð

Sunnudagur 12. apríl 2009 · 6 ummæli · almennt

Þá er ég loxins kominn hingað en ég hef ekkert getað bloggað vegna þess að a) ég var ekki með netsamband í íbúðinni, og b) ég hef verið að koma mér fyrir og er enn að. Þetta er þó allt að koma en enn er eftir að taka upp úr nokkrum kössum og koma innihaldinu fyrir. Reyndar er einn kassinn bara fullur af snúrum; fjöltengi, framlengingar og þannig. Það verður bara geymt einhversstaðar. Svo á ég enn eftir að koma upp heimabíókerfinu en vegna þess að ég finn ekki fæturnar fyrir hátalarana (sem eru einhversstaðar útí skúr í Baughúsum) hef ég ekki enn farið í að tengja það.

Þannig að ég er nokkurn veginn búinn að koma mér fyrir, bara eftir að setja upp gluggatjöld og ganga frá örfáum hlutum og þá er allt tilbúið.

Ég hef ekkert skráð mig inn á MSN síðan ég fékk netið (í gær) vegna þess að ég hef einfaldlega of mikið að gera í þessu stússi hérna og hef ekki efni á að missa úr tímann.

Annars drapst stóra tölvan á mig þegar ég kom hingað, veit ekkert hvað er að. Þannig að nú er ég að vinna í gegnum fartölvuna með stóra skjáinn tengdan við hana (sumsé með tvo skjái). En sú tölva er næstum því orðin sex ára og ekkert alltof afkastamikil, en þetta verður að vera svona í smástund til viðbótar. Ég var búinn að skrá routerinn minn hjá HÍ en það var ekki að virka, þannig að ég skráði netkort fartölvunnar og það virkaði – en þetta er eitt enn sem ég þarf að kippa í lag við tækifæri.

Ég hendi inn myndum síðar, en annars eru framundan þrjár ritgerðir og lestur – það mun ganga fyrir.

Efnisorð: ·

6 ummæli hingað til↓

  • Ásgeir H

    Fluttirðu án mín? Hver fékk þá að halda á öllu draslinu þínu?

  • Siggi

    Gaur, þú átt bara að fylgjast með Facebook invite-unum þínum og mæta! Tókum þetta létt annars, þrír feðgar og einn frændi.

    Hvað ætlarðu svo að fara kalla mig núna? Ekki gengur úthverfislubbi lengur, eða skot í þá áttina.

  • Ragnheiður frænka

    Elsku Siggi til hamingju með að vera fluttur,
    gangi þér vel.
    Bestu kveðjur frá okkur öllum í K – Seli.

  • Siggi

    Takk kærlega fyrir það mín kæra móðursystir – það er mjög fínt að vera kominn hingað í miðbæinn!

  • Ásgeir H

    Fylgjast með Facebook-invætum???? Hver í ósköpunum gerir það eiginlega? En ég hugsa að ég kalli þig bara Snúð áfram, þú verður alltaf Snúður hvert sem þú flytur …

  • Siggi

    Flestir sem eru á Facebook af e-u viti fylgjast með því, enda ekki með því flóknara sem hægt er að gera þar. En með því að kalla mig Snúð áfram ertu ennþá svolítið fastur í þeirri gildru að teljast hálf hýr.

Skildu eftir ummæli.