Ég er farinn að stressast svolítið yfir ritgerðaskilum því ég hef ekki verið nógu duglegur að vinna við þær. Þetta hefur eiginlega allt bara farið fram í huganum hingað til en það sem er helst að trufla mig er að ég er enn að koma mér fyrir í íbúðinni og mér finnst óþægilegt að hafa hluti í óreiðu í kringum mig. Ég á mjög erfitt með að læra í svoleiðis umhverfi. Þess vegna er ég alltaf að dytta að hinu og þessu, raða og endurraða, spá í hvernig hitt og þetta kæmist best fyrir o.s.frv.
En það er ekki seinna að vænna en að byrja á raunverulegri vinnu í kvöld, og byrja á því að fara í heimildaleit.
Fyrir kúrsinn Stjörnufræði geri ég ritgerð um Harrison Ford (gátum bara valið úr nokkrum stjörnum) og líst ágætlega á það, en þetta þarf að vera fræðilegs eðlis, ekki bara að hann hafi komið við á Íslandi og fengið sér öl. En ég ætla pottþétt að koma að “Íslandsvinur” í ritgerðina. Fyrir Framúrstefna og evrópskar kvikmyndir 1909-1939 ætla ég að skrifa um Salvador Dalí, en ég þarf víst að velja viðfangsefni í samráði við kennara. Ég sendi honum þá bara línu á eftir og fæ vonandi grænt ljós á það. Erfiðasta ritgerðin verður án efa fyrir Japanskir kvikmyndahöfundar en hana er ég alls ekki búinn að móta í huganum, bara grunnatriðin. En ljóst er þó að ég mun taka fyrir kvikmyndina Red Beard eftir Kurosawa og greina hana frá ýmsum sjónarhornum.
Ofan á þetta bætist við hálft heimapróf (seinni helmingur) í Menningarheimar en ef ég skila inn vottorði þá mun það vega meira en eitt próf því að þetta mun þá verða eina heimaprófið sem ég skilaði alla önnina (af þremur). Fyrst var ég einfaldlega of veikur, og próf númer tvö fór bara algerlega framhjá mér.
En hvað viðkemur íbúðinni þá eiginlega gæti ég ekki verið betur staðsettur. Ég er innan við 5 mínútur í næstu Bónusverslun, innan við 10 mínútur niður í Austurstræti og að labba í skólann tekur um 20 mínútur (og 25 mín. í Melhagann til Sigþórs, Petrínu og Gunnu litlu). Hlemmur er líklega ca. 10 mínútur héðan. Þó þetta sé allt rosalega gaman þá er óneitanlega skrítið að vera fluttur út og þurfa að aðlagast því – sérstaklega þarf ég að læra að elda eitthvað annað en hamborgara og núðlur. En fólk er alltaf velkomið í heimsókn, það lífgar bara upp á daginn og lífið.
Kíkið við, veri ófeimin!
Jábbs, ekki nóg með að hann hafi fengið sér öl hérna heldur segja blöðin að hann hafi verið mjög hrifinn af Austur Indía Fjélaginu og gúffað í sig indverskum mat þar. Margir svona punktar ættu að gera ritgerðina “fræðilega” – ekki satt?
Já, ég verð að koma því að einhvern veginn – er þegar búinn að skjóta því inn að hann sé Íslandsvinur. Það eru örugglega 2 heilir í einkunn nú þegar.
Sæll frændi.
Til hamingju með daginn
Bestu kveðjur frá bestu frænku þinni
Takk kærlega fyrir það frænka! Ég meina besta frænka mín! Það er ekki laust við það að maður hlakki til að sjá hann son þinn aftur.