Miðgarður

Listamaðurinn lengi þar við undi

Miðgarður header image 2

Nóg að gera í eiginlegu fríi

Sunnudagur 17. maí 2009 · Engin ummæli · almennt

Þá er skólinn búinn, eða svo gott sem, eitt veikindapróf í næsta mánuði eftir og ég er þegar byrjaður að undirbúa mig fyrir það. Borgaði vinnufélaga mínum vakt um daginn, en ég hitti hann í Krónunni snemma mánaðar og minnti hann á að ég skuldaði honum – hann var búinn að steingleyma því. En, eins og Jokerinn sagði; “I’m a man of my words.” Ég læt þó vera að hlæja eins og móðursjúkur væri.

Ég er annars þessa dagana að ná ýmsu upp sem ég hef vanrækt, t.d. að klippa Japan Festival frá því í fyrra, komast aftur af stað í ræktinni með nýtt prógram og ætla mér að komast í betra form yfir sumarið en það hefur alltaf verið sá tími árs sem ég missi mig vegna vinnunnar. Þá hef ég skráð mig á byrjendanámskeið á línuskautum sem verður þann 25. þessa mánaðar (láta gamlan “draum” rætast), þannig að það er ýmislegt í gangi þó svo ég sé í eiginlegu fríi.

Ég er bara búinn að fá eina einkunn, en ég fékk 7,5 fyrir kvikmyndastjörnu kúrsinn. Ég efast um að ég fá hærri einkunn í öðrum kúrsum þessa önnina.

Eins og er er ég í Baughúsum í góðu yfirlæti mömmu. Það er ágætt að koma hingað í heimsókn og gista svosem eina nótt, kisurnar kúra alltaf hjá mér sem er alveg frábært. Þeirra sakna ég alltaf mest.

Efnisorð: ······

Engin ummæli hingað til↓

Skildu eftir ummæli.