Það er alveg ótrúlegt hversu oft maður les í blöðum um að þessi eða hin fræga persóna varð fyrir því að fartölvu hennar eða hans var stolið, með öllum gögnum og jafnvel ævistarfi þeirra á henni. Hvernig væri að fólk lærði að taka afrit af gögnunum sínum? Kaupa eitt stykki utanáliggjandi harðan disk (ef það vill endilega geyma ævistörf sín í litlum fartölvum sem hentugt er að grípa (stela)) og láta hugbúnað sjálfvirkt taka afrit af öllum gögnum tölvunnar.
Þetta eru bara orðnar pirrandi fréttir og þetta fólk fær enga samúð frá mér (allra síst ef heitið er fundarlaunum), það á bara að vera forsjált og nota heilann aðeins í stað tölvunnar.
Nei
Víst.