Miðgarður

Hér er ekkert hrafnaþing, hér er enginn tregi

Miðgarður header image 2

Afsakið hléið

Þriðjudagur 9. júní 2009 · Engin ummæli · almennt

Afsakið lognmolluna hérna en það hefur gengið á ýmsu hjá mér síðustu vikur, en svosem ekkert til þess að segja frá sérstaklega. Það er óneitanlega skrítið að vera fluttur að heiman; enginn heima þegar ég kem úr vinnunni, ekki einu sinni kettir, og eldamennskan… úff. En þetta kemur allt með tímanum. Ég ætla að reyna að vinna eins mikið og ég mögulega get í sumar og sjá svo til hvernig það gengur að búa hérna. Ef það verður of hart í ári þá á ég alltaf samastað á hótel mömmu, en ég ætla að láta reyna á þetta til þrautar.

Ég fer í eitt próf á þriðjudaginn í næstu viku og er þá skólanum opinberlega lokið hjá mér þessa önnina. Enn á ég eftir að taka einn áfanga í japönsku, sem er japanskt ritmál II, og ég þarf að ná að semja við kennarann minn um að fá annað hvort aðra áfanga metna fyrir hann, eða fá að taka próf einhverntíma. Mjög leiðinlegt að eiga þetta eftir, sérstaklega að maður ryðgar svo fljótt í tungumálum ef maður æfir sig ekkert.

Ég er sumsé kominn á fullt í vinnunni og er rétt 5 mínútur að labba þangað héðan úr Skuggagörðum, sem er alveg frábært. Nóg að vakna hálftíma fyrr, klæða sig, og fá sér svo morgunmat í vinnunni. Sparar mér líka matarkostnað hérna heima, og fæ að auki tvær heitar máltíðir á dagvöktum.

Ég keypti mér hlaupaskó í dag. Ég hef aldrei verið mikið fyrir að hlaupa bara til þess að hlaupa, og hef aldrei verið með gott lofthátt þol. Ég var alltaf seinastur í löngum hlaupum á yngri árum, en ég var hinsvegar mjög framarlega þar sem snerpu og mikils krafts í stutta stund var krafist. En nú er kominn tími á að þjálfa hjartað, og guð hvað það verður erfitt. Kostirnir við það eru hinsvegar bara alltof margir til þess að ég geti haldið áfram að hundsa það. Ég vil meina að ég hafi gott hjarta, táknrænt séð, en ég vil líka hafa sterkt hjarta sem mun endast mér vel í ellinni.

Efnisorð: ···

Engin ummæli hingað til↓

Skildu eftir ummæli.