Þá er vinnan búin í sumar og ég því kominn í vetrarfrí. En vetrarfríinu fylgir alltaf skóli. Ég huxa að ég muni skrifa BA ritgerðina mína á næstu önn og skila í júní næsta ári. Viðfangsefnið er leikstjórinn Jim Jarmusch, en ég get ekki sagt meira um málið að svo stöddu (er svolítið að reyna koma mér inn í pólitískt lingó). Á þessari önn er ég skráður í fjóra eftirfarandi kúrsa:
- Aðferðir og hugtök (ABF104G)
- Bókmenntaritgerðir (ABF103G)
- Kvikmyndahöfundar (KVI104G)
- Kvikmyndir frá frönskumælandi löndum (FRA304G)
Svekktastur er ég að Guðni Elísson skuli ekki kenna “Aðferðir og hugtök”, en hann er víst í eins og hálfs árs fríi. Svo er skandall að ég skuli rétt að vera taka kúrsinn um bókmenntaritgerðir, svona langt kominn í námi. Kúrsinn um kvikmyndahöfunda mun nýtast mér vel því ég mun á einhvern hátt skrifa um Jarmusch sem kvikmyndahöfund. Djöfull er ég þyrstur – hinkrið aðeins…
Ein ísköld Kókómjólk kominn á kantinn.
Það er bara liðin ein vika af skólanum eins og er, eða fyrsta rennsli eins og þau segja í leikhúsunum (segja þau það ekki annars?), en önnin leggst vel í mig og á.
Engin ummæli hingað til↓