Miðgarður

Hér er ekkert hrafnaþing, hér er enginn tregi

Miðgarður header image 2

15 mínútur á Omega

Miðvikudagur 30. september 2009 · 4 ummæli · sjónvarp

Ég horfði á sjónvarpsstöðina Omega í ca. 15 mínútur á mánudagskvöldið síðastliðið.

Í þætti um hollustu og hreyfingu sagði gamli maðurinn að það væri bara óhollt að neyta of mikils frúktósa (náttúrulegs sykurs úr ávöxtum) og talaði um að fá sér bara eitt epli en ekki tvö. Hann virtist setja samasem merki á milli tvísykra súkrósa (hvíts sykurs) og frúktósa. Ég var létt hneykslaður. Meðstjórnandi hans sagði að eplabökur væru samt ekkert óhollar. Hann var heldur betur ósammála.

Næst á dagskrá var umfjöllun um trjábolahlaup. Hárrét, trjábolahlaup. Hver bíður ekki spenntur eftir nýjustu úrslitum trjábolahlaups í norðurfylkjum Bandaríkjanna? Í heimsókn fengu þau heimsmeistarann sjálfan Jenny (man ekki eftirnafnið), en sá sem að þýddi þáttinn vildi hinsvegar kalla hana Gene. Fjórum sinnum. En svo hætti hann við og kallaði hana Jane það sem eftir var. Skítt með hvað skiltið frá sjónvarpsstöðinni sagði (Jenny…). Svo var líka þýðandinn ekkert að þýða allt, hann bara sleppti því sem að honum fannst vera ónauðsynlegt. Hann er kannski mínimalisti? Ekkert að flækja hlutina að óþörfu, einfalda þetta.

Í fréttaskotinu var stuttlega fjallað um samkynhneigt fólk og giftingar. Nei, afsakið, “kynvillinga” eins og þýðandinn skrifaði. En eins og við vitum þýðir enska orðið “gay” (sem var notað í fréttaskotinu) náttúrulega kynvillingur. Sem betur fer hefur Omega hæfan þýðanda.

Þetta og fleira til sá ég á einungis 15 mínútum. Skemmtilegt þetta Omega fólk.

Efnisorð:

4 ummæli hingað til↓

Skildu eftir ummæli.