Miðgarður

Ill ráð hefir maður oft þegið annars brjóstum úr

Miðgarður header image 2

Boccia í þá gömlu góðu daga

Sunnudagur 8. nóvember 2009 · 4 ummæli · ekki frétt

Það er af sem áður var. Fyrir um 40 árum var boccia vinsælasta íþrótt Íslendinga og fór íþróttafréttamaðurinn Gunnar Dal mikinn í lýsingum sínum á þeim fjölda leikja sem sendir voru út beint með útvarpsbylgjum.

Eftirminnilegasti leikurinn, segir Gunnar, var Von vegn Spjátrungum, sem fram fór á elliheimilinu Fjör í Hafnarfirði árið 1968 þegar boccia var að rísa upp sem helsta íþrótt landsins. “Það ætlaði allt um koll að keyra,” segir Gunnar. Aðspurður hví hitinn hafi verið svona mikill segir Gunnar: “Á þeim tíma var steranotkun lögleg, en upp kom þurrð á landinu og voru flestir í fráhvörfum þann daginn.”

Eins og gefur að skilja voru skapbrestir miklir í Fjör þegar mætt var til keppni, og sést það glögglega á meðfylgjandi mynd þar sem Gunnar er að lýsa leiknum þegar Alfreð Th. Bollason skaut kúlu Sigríðar Fleck út úr hringnum.

Gunnar að lýsa boccia leiknum á ögurstundu

Gunnar að lýsa boccia leiknum á ögurstundu

Efnisorð: ·

4 ummæli hingað til↓

Skildu eftir ummæli.