Margir vilja alltaf halda þessum lýsingarorðum saman þegar kemur að kvikmyndum. Ef mynd er skemmtileg hlýtur hún að vera góð, og góð mynd er alltaf skemmtilegt. En það er bara ekki þannig. Fólk verður að geta gert grein á milli góðra mynda og lélegra mynda sem eru samt sem áður skemmtilegar.
Mér finnst Transformers skemmtilegar myndir þó svo þær séu frekar lélegar. Eins fannst mér Doom skemmtileg þó hún sé hræðileg kvikmynd. Sama segi ég um Silent Hill. En svo eru náttúrulega til myndir sem eru slæmar og ógeðslega lélegar: allar Uwe Boll myndirnar.
Fólk er skíthrætt við að vera dæmt fyrir lélegan kvikmyndasmekk og þykja hinar og þessar myndir skemmtilegar þó svo að innst inni viti það að þær séu “lélegar”.
Vill einhver gefa mér Silent Hill á Blu-Ray í afmælisgjöf?
ALDREI !!!! Uwe Boll pakkinn er hinsvegar tilbúinn í 2001.
Já frábært! Langt síðan ég pantaði hann. Þurfti hvorki meira né minna en þrýstihóp á Fésbók til þess að fá þetta í gegn.