Miðgarður

Ill ráð hefir maður oft þegið annars brjóstum úr

Miðgarður header image 2

Nýárið

Föstudagur 15. janúar 2010 · Engin ummæli · almennt, skóli

Ég hef aldrei almennilega skilið tilganginn með því að óska öðrum gleðilegt nýtt ár. Miklu skemmtilegra að bjóða fólki gleðilega nýja vinnuviku á mánudögum. Ég er annars svolítið ringlaður núna; er kominn nýr áratugur eða erum við enn á fyrsta áratugi 21. aldarinnar? Það voru nefnilega ekkert allir sammála um hvenær ný öld byrjaði. Flestir, að ég held, vildu meina að hún byrjaði um leið og árið 2000 rann upp, en aðrir ekki fyrr en 2001 byrjaðir. Samvkæmt þeirri kenningu, byrjar nýr áratugur nokkuð fyrr en á næsta ári, árið 2011?

Hvað sem því skiptir líður tíminn áfram og ég verð eldri. Ég náði öllum prófum á síðustu önn, þó rétt naumlega í sumum tilfellum, og tek nú tvö námskeið og er í 50% vinnu að auki. Ég ákvað að fresta BA ritgerðinni til sumarsins, þ.e.a.s. ég mun skila henni inn að loknu sumri en ekki í byrjun sumars.

Efnisorð: ·

Engin ummæli hingað til↓

Skildu eftir ummæli.