Miðgarður

Taktu í nefið tyrfingur

Miðgarður header image 4

Færslur flokkaðar sem "almennt"

Mamma reddar öllu

mars 6th, 2010 · 3 athugasemdir · almennt

Þetta var alveg týpískt. Ég var búinn að vandræðast yfir því hvernig ég gæti hengt upp Tolkien dagatalið mitt (það má ekki negla í veggina á háskólagörðum) og ég hélt ég væri búinn að finna lausn á því, með svona snögum sem maður límir á veggina. En það tók að losna þar til að snaginn [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ···

Eyðslukló

janúar 16th, 2010 · Engar athugasemdir · almennt

Ég hef lifað frekar spart undanfarna mánuði, en þó má alltaf spara meira við. Í gær leyfði ég mér hinsvegar smá munað (og reyndar um jólin) og keypti mér eitt stykki Dualshock 3 fyrir Playstation 3. Eitt slík stykki er ekki alveg fríkeypis; kr. 11.999 í Bónus. Svona svipað og einn leikur í sömu tölvu. [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ····

Nýárið

janúar 15th, 2010 · Engar athugasemdir · almennt, skóli

Ég hef aldrei almennilega skilið tilganginn með því að óska öðrum gleðilegt nýtt ár. Miklu skemmtilegra að bjóða fólki gleðilega nýja vinnuviku á mánudögum. Ég er annars svolítið ringlaður núna; er kominn nýr áratugur eða erum við enn á fyrsta áratugi 21. aldarinnar? Það voru nefnilega ekkert allir sammála um hvenær ný öld byrjaði. Flestir, [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ·

1,5 lítra Léttmjólk takk

október 22nd, 2009 · 4 athugasemdir · almennt

1,5 lítri af Léttmjólk kostar 148 krónur í Bónus, en 199 krónur í 10-11 í Austurstræti. Það er eitthvað mjög óeðlilegt við þetta allt saman. Ég kláraði þessa þrjá lítra sem ég keypti í 10-11 á einum sólarhringi.

[Lesa meira →]

Efnisorð: ···

Þessi leiðinlegu stjórnmál

september 26th, 2009 · Engar athugasemdir · almennt, pólitík

Æji, stjórnmál eyðileggja alltaf allt. Það má aldrei gera neitt nema að stjórnmálum sé bendlað við málið, og þá verður það sjálfkrafa hundleiðinlegt. Ég er og verð alltaf ópólitískur, og mun halda mig við þann rétt að kjósa ekki. Stjórnmál eru alltaf eins og olían sem mengar tært vatnið.

[Lesa meira →]

Efnisorð:

Af hverju er tollurinn alltaf svona ógeðslega leiðinlegur?

ágúst 6th, 2009 · 5 athugasemdir · almennt

Nú þarf ég að kvarta, og þá blogga ég auðvitað.
Vegir íslenska tollsins eru mér gjörsamlega órannsakanlegir. Til fjölda ára hef ég samviskusamlega prentað út reikning þess sem ég er að panta að utan, komið með hann upp í tollafgreiðsluna og kvittað svo undir sem veitir tollinum mitt leyfi til þess að opna pakkann til þess [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ···

Er enn hér, og er enn Íslendingur

júlí 5th, 2009 · Engar athugasemdir · almennt, pólitík

Þá er þetta komið í lag aftur, og ég kominn aftur. Síðan lá niðri í smá tíma (gleymdi að endurnýja áskriftina mína), en er í lagi núna.
Hef verið einstaklega afkastalítill hérna undanfarið. Hef einhvern veginn alltaf verið andlaus þegar ég ætla að skrifa eitthvað, en þegar ég er er að gera eitthvað allt annað dettur [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ··

Í fréttum er hvað helst?

júní 17th, 2009 · 4 athugasemdir · almennt

Þar sem ég er orðinn einbúi (en þó ekki upp á hæð úti í sveit) fylgist ég voðalega lítið með fréttum, helst þá í vinnunni. Fréttablaðið er bara sett í hólf niðri í anddyri og maður tekur sér ef maður hefur áhuga á, en ég er ferlega latur við það. Enda nenni ég ekkert að [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ·····

Afsakið hléið

júní 9th, 2009 · Engar athugasemdir · almennt

Afsakið lognmolluna hérna en það hefur gengið á ýmsu hjá mér síðustu vikur, en svosem ekkert til þess að segja frá sérstaklega. Það er óneitanlega skrítið að vera fluttur að heiman; enginn heima þegar ég kem úr vinnunni, ekki einu sinni kettir, og eldamennskan… úff. En þetta kemur allt með tímanum. Ég ætla að reyna [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ···

Nóg að gera í eiginlegu fríi

maí 17th, 2009 · Engar athugasemdir · almennt

Þá er skólinn búinn, eða svo gott sem, eitt veikindapróf í næsta mánuði eftir og ég er þegar byrjaður að undirbúa mig fyrir það. Borgaði vinnufélaga mínum vakt um daginn, en ég hitti hann í Krónunni snemma mánaðar og minnti hann á að ég skuldaði honum – hann var búinn að steingleyma því. En, eins [...]

[Lesa meira →]

Efnisorð: ······