Nafn: Sigurður Arnar Guðmundsson
Aldur: 30
Fæðingardagur: 27. apríl, 1979
Netfang: siggia@gmail.com
Facebook: facebook.com/siggia
Twitter: twitter.com/siggia
Myndir á Picasa: picasaweb.google.com/siggia
YouTube: youtube.com/siggia
Stutt lýsing: Ég fæddist á Akureyri og ólst þar upp til 19 ára aldurs, en haustið 1998 fluttist ég til Reykjavíkur. Ég hætti í framhaldsskóla, vann í nokkur ár við hitt og þetta, kláraði kvikmyndagerðarkúrs í Kvikmyndaskóla Íslands vorið 2000 og vann í þeim bransa í u.m.þ.b. ár. Ég ákvað svo að klára stúdentinn, sem og ég gerði jólin 2005. Ég byrjaði í Háskóla Íslands strax á vorönn 2006 og er nú þar að læra kvikmyndafræði með japönsku sem aukagrein. Ég ætla að sækja um meistaranám í kvikmyndafræði í New York haustið 2010.
Miðgarður: Ég sagði mig úr Þjóðkirkjunni sumarið 2007 og skráði mig um leið í Ásatrúarfélagið. Ég er ekki trúaður en fannst tilvalið að skrá mig í Ásatrúarfélagið einungis vegna áhuga á norrænni goðafræði og þess þjóðararfs sem við Íslendingar eigum. Þegar ég ákvað að yfirgefa Blogger kerfið og setja upp eigið lén fannst mér viðeigandi að skýra það Miðgarð, sá staður sem menn búa í í norrænni goðafræði.

